Leikskólasérkennari í sérkennsluteymi
Heilsuleikskólinn Kór sem staðsettur er í Baugakór í Kópavogi auglýsir eftir þroskaþjálfa, kennara og/eða annað uppeldismenntað starfsfólk til að koma í teymið okkar.
Heilsuleikskólinn Kór var byggður sem sex deilda leikskóli og opnaður
árið 2006, með 100 nemendur. Skólar ehf. er 24 ára gamalt félag, sem rekur fjóra aðra heilsuleikskóla í sveitarfélögunum Garðabæ, Reykjavík og Reykjanesbæ.
Allir leikskólar innan vébanda Skóla ehf. starfa í anda heilsustefnunnar sem kjarnast um heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins.
Einkunnarorð okkar eru "Heilbrigð sál í hraustum líkama".
Leikskólakennari óskast til starfa frá og með áramótum 2025 í Heilsuleikskólann Kór, Kópavogi.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá skólastjórnendum í tölvupósti: kor@skolar.is eða í síma 570-4940.
Umsóknarfrestur er til 15. desember
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja sérkennslu á viðkomandi deild í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra og leiðbeina starfsfólki deildarinnar á þann hátt að starfsfólkið taki þátt í kennslu barna sem þurfa sérkennslu.
- Gera skriflega einstaklingsnámskrá fyrir hvert barn, sem nýtur sérkennslu á deildinni, í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
- Sér um að einstaklingsnámskrám sé framfylgt og þær endurmetnar í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra
- Veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda, sérstaka aðstoð og kennslu.
- Gætir þess að barn sem nýtur sérkennslu einagrist ekki, heldur sé hluti af hópnum og eigi hlutdeild í leikskólastarfinu
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forsjáraðila barna sem njóta sérkennslu á deildinni og situr fundi og viðtöl með þeim.
- Situr foreldrafundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.
- Ber að hafa náið samstarf við sérkennslustjóra og sérkennsluráðgjafa vegna barna sem njóta sérkennslu á deildinni.
- Situr fundi þar sem fjallað er um málefni barna sem þurfa sérfræðiaðstoð eða sérkennslu á deildinni samkvæmt boðun yfirmanns eða hlutaðeigandi aðila.
- Situr starfsmannafundi og aðra fundi sem yfirmaður segir til um og varða starfsemi leikskólans.
- Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður úthlutar
Næsti yfirmaður er sérkennslustjóri
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara eða menntun sem nýtist í starfi s.s. þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Áhugi á að vinna með börnum
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Vilji til að taka þátt í þróun á faglegu starfi og láta til sín taka
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, áhugi og faglegur metnaður í starfi
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu undir stjórn deildarstjóra og sérkennslustjóra
- Að læra um og tileinka sér starfsaðferir skólans
- Taka þátt í skipulagningu starfsins í samstarfi við stjórnendur
- Kennaramenntun
- Uppeldismenntaður starfsmaður
- Reynsla af uppeldi og menntuna ungra barna er æskileg
- Frumkvæði og ábyrgð í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Vinnustytting er að hluta til tekin milli jóla- og nýárs, í dymbilviku og tveimur vetrarfríum. Rest er tekin í samráði við leikskólastjóra
- Samgöngustyrkur
- Viðverustefna
- Heilsustyrkur
- Ýmis fríðindi og sveigjanleiki fyrir kennara með leyfisbréf s.s. forgangur fyrir börn, sveigjaneiki í vinnutímaskipulagi (undirbúningsviðveru)
- 3 heilsusamlegar máltíðir á dag
- 40% afsláttur af dvalargjaldi leikskólabarna í leikskólum Kópavogs (ef við á)