Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi eða annar háskólamenntaður sérfræðingur á heimili fatlaðs fólks - Berjahlíð

Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á heimili fatlaðs fólks - Berjahlíð

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða til starfa þroskaþjálfa eða starfsmann með sambærilega menntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða starf á heimili fatlaðs fólks staðsett í Setbergshverfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. September 2024.

Starfshlutfall er 70-90% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfstöðvar
  • Sinnir faglegum verkefnum starfsstöðvarinnar undir stjórn forstöðumanns
  • Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda
  • Veitir fötluðu fólki einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning í daglegu lífi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfafræða, félagsvísinda eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. Starfsleyfi á viðeigandi sviði.
  • Reynsla af sambærilegu starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Samstarf- og skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og samviskusemi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð tölvukunnátta
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Hilmarsdóttir, [email protected].

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22.07.2024

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt8. júlí 2024
Umsóknarfrestur22. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Berjahlíð 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar