
Expert ehf.
Expert er þjónustufyrirtæki sem býr að fjölda tæknimanna og framúrskarandi fólki í einbeittu starfsliði sínu. Expert vinnur að því að viðskiptavinir þess nái sem bestum árangri.
Expert er með daglega umsjón á yfir 16 þúsund tækjum í eigu viðskiptavina og að meðaltali búa tæknimenn okkar yfir 17 ára starfsreynslu í okkar fagi. Hjá okkur starfa m.a. rafvirkjar, vélfræðingar, vélvirkjar, viðskiptafræðingar og fólk með ólíka en trausta reynslu í okkar geira. Expert er hluti af Fastus ehf.
Á meðal þeirra aðila sem við þjónustum daglega eru m.a. verslanir, hótel, veitingastaðir, barir, vinnustaðir og opinberar stofnanir. Á meðal helstu tækja eru kæli- og frystiklefar, kælikerfi hverskonar, kælar, kaffivélar, vatnsvélar, klakavélar, bjór og gostækjum, svo eitthvað sé nefnt.
Þjónustuheimsóknir
Expert ehf. óskar eftir að ráða til starfa aðila í hreinsun á kaffivélum og bjórtækjum. Viðkomandi heimsækir reglulega fjölda viðskiptavina okkar. Við leitum að starfsmanni sem er laghentur og fellur vel að góðum hópi starfsfólks okkar.
Starfssvið: Hreinsun og viðhald á bjórkrönum og kaffitækjum.
Hæfniskröfur:
- Drifkraftur og skipulagshæfni.
- Góð hæfni í samskiptum.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
Vinnutími: Unnið er á virkum dögum frá 08:00 til 16:00.
Laun: Í boði eru góð laun fyrir réttan aðila.
Um Expert:
Expert ehf. þjónustar mörg af stærri fyrirtækjum landsins. Hjá Expert og tengdum félögum starfa nú um 36 starfsmenn við gott starfsumhverfi og virkt starfsmannafélag. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Sendið inn ferilsskrá hér á Alfred.is.
Auglýsing birt4. ágúst 2022
Umsóknarfrestur18. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniMetnaðurÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið

Bílstjóri með meirapróf óskast
Dreki ehf

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum búnaði.
Járn og Gler hf

Lagerstarf
Ísfell

Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild
Bílaumboðið Askja

Okkur vantar starfsmann strax í dekkjatörnina. Starfið er tímabundið.
Arctic Trucks Ísland ehf.

Starfskraftur í Þjónustuver - Afleysing
Ó.Johnson & Kaaber

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Tæknimaður á upplýsingatæknisvið
VHE

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)