
Starfskraftur í Þjónustuver - Afleysing
ÓJ&K – Ísam óskar eftir starfskrafti í Þjónustuver til afleysinga til 1. ágúst 2027
Um er að ræða fullt starf. Vinnutími er frá mánudegi til föstudags frá kl 08:00 - 16:00. Stytting vinnuvikunnar tekin annan hvern föstudag.
Gott væri ef viðkomandi hefði einhverja reynslu af sölumennsku og símsvörun, en ekki skilyrði. Æskilegt að viðkomandi tali íslensku.
Umsækjandi þarf að búa yfir almennri tölvukunnáttu, hafa góða þjónustulund, vera úrræðagóður, stundvís og sjálfstæður í vinnubrögðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun
Móttaka pantana
Aðstoð við sölumenn
Önnur tilfallandi verkefni
Kostur ef viðkomandi gæti byrjað fljótlega.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Hildur Björk Gunnarsdóttir ■ [email protected]
ÓJ&K–ÍSAM ehf. er framsækin heildsala sem starfar á neytenda-, stóreldhúsa- og sérvörumarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns. Nánari upplýsingar má finna á ojk-isam.is.
Íslenska










