
JYSK
JYSK er hluti af alþjóðlegu verslunarkeðjunni JYSK. Fyrsta verslunin var opnuð á Íslandi árið 1987 af þeim Jákup Jacobsen og Jákupi N. Purkhús og hét þá Rúmfatalagerinn. Í dag eru verslanir JYSK 7 talsins ásamt vefverslun og vöruhúsi. Verslanir eru staðsettar á Smáratorgi, Skeifunni, Granda, Bíldshöfða, Selfossi, Reykjanesbæ og Akureyri.
JYSK hefur verið leiðandi á lágvöruverðsmarkaðnum á Íslandi frá upphafi. JYSK hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða frábært vöruúrval, góða þjónustu ásamt því að vera ávallt með góð tilboð.

Þjónustufulltrúi
Vilt þú veita framúrskarandi þjónustu?
Þjónustuver JYSK leitar að jákvæðum, þjónustulunduðum og lausnamiðuðum liðsmanni í teymið sem leysir erindi viðskiptavina JYSK. Um er að ræða fullt starf í þjónustuveri okkar sem er staðsett á Smáratorgi í Kópavogi. Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri.
Ef þú hugsar í lausnum, hefur gott tölvulæsi og nýtur þín í samskiptum hvetjum við þig til að sækja um starfið.
Vinnutími er mánudaga til föstudaga frá kl. 9:00-17:00 aðra vikuna og 9:30-17:30 hina vikuna og svo önnur hvor helgi frá kl. 12:00 til kl. 18:00. Frí er á föstudegi fyrir vinnuhelgi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við viðskiptavini í síma, tölvupósti og á samfélagsmiðlum
- Upplýsingagjöf og þjónusta við viðskiptavini
- Skráningar og skjalavinnsla
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
- Jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Reynsla af sambærilegum störfum kostur en ekki skilyrði
Auglýsing birt19. júní 2024
Umsóknarfrestur1. júlí 2024
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Smáratorg 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fjármálasérfræðingur
BYKO

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland