Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun

Þjónustufulltrúar - sumarstörf

Náttúruverndarstofnun leitar að jákvæðum, hjálpsömum og þjónustulunduðum einstaklingum með brennandi áhuga á náttúru og umhverfismálum til sumarstarfa í gestastofum og á tjaldsvæðum stofnunarinnar. Starf þjónustufulltrúa er fjölbreytt, þar sem áhersla er lögð á að veita framúrskarandi þjónustu, miðla upplýsingum, afgreiðslu, umhirðu, ræstingar og að stuðla að jákvæðri upplifun gesta.

Einstaklingar sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu mikilvæga starfi eru hvattir til að sækja um og leggja sitt af mörkum til að bæta upplifun gesta og styðja við verndun náttúru Íslands.

Um Náttúruverndarstofnun

Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 og tekur stofnunin við starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og þeim hluta Umhverfisstofnunar er lýtur að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar, sjálfbærrar þróunar og friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar og eftirliti á ofangreindum sviðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka gesta, upplýsingagjöf og þjónusta í gestastofum.
  • Umsjón með afgreiðslu, umhirðu og daglegri starfsemi.
  • Áfylling og framsetning vara í verslun og daglegt uppgjör tekna.
  • Símsvörun og svörun tölvupósta.
  • Ræsting, umhirða og viðhald á gönguleiðum, tjaldsvæðum, gestastofum og áningastöðum þar sem við á.

Auglýst er eftir þjónustufulltrúum til starfa í Skaftafelli, Jökulsárgljúfrum/Ásbyrgi og í Snæfellsjökulsþjóðgarði.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og sterk þjónustulund.
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lausnamiðuð hugsun við fjölbreyttar aðstæður.
  • Stundvísi, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Áhugi á náttúruvernd og umhverfismálum.
  • Geta til að tileinka sér þekkingu á starfssvæðinu.
  • Geta til að vinna undir álagi og í fjölbreyttu vinnuumhverfi.
  • Gott vald á íslensku og ensku, frekari tungumálakunnátta er kostur.
  • Ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru kostur.
  • Fyrstu hjálpar réttindi eru kostur.
Auglýsing birt31. janúar 2025
Umsóknarfrestur17. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar