Hlutastörf í farþegaþjónustu á Keflavíkurflugvelli
Farþegaþjónusta Airport Associates leitar að metnaðarfullu og þjónustumiðuðu starfsfólki í hlutastörf í sumar. Airport Associates er flugafgreiðslu fyrirtæki við Keflavíkurflugvöll sem veitir þjónustu allan sólahringinn.
Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni í hröðu og spennandi vinnuumhverfi þar sem samskiptahæfni og þjónustulund skipta lykilmáli. Helstu verkefni fela í sér innritun farþega, byrðingu á hliði og aðra nauðsynlega þjónustu fyrir þau flugfélög sem Airport Associates þjónustar. Um er að ræða vaktavinnu.
Nýtt starfsfólk í farþegaþjónustu mun sækja tveggja vikna þjálfunarnámskeið áður en störf hefjast formlega. Námskeiðið veitir starfsfólki nauðsynlega þekkingu og færni til að veita faglega þjónustu við bæði flugfélög og farþega.
Í boði eru hlutastörf í 35%, 65% eða 75% starfshlutfalli, dag- og kvöldvaktir. Möguleiki er á framtíðarstarfi eftir sumarið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Íris Ósk Guðlaugsdóttir, mannauðssérfræðingur, [email protected]
- Innritun farþega og farangurs
- Skimun og staðfesting vegabréfa og nauðsynlegra ferðagagna
- Þjónusta á hliði og byrðing farþega
- Samskipti við farþega
- Þjónustuborð flugfélaga
- Aðstoð við sjálfsinnritun farþega
- Góð enskukunnátta
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Góð tölvukunnátta og geta til þess að læra á ný kerfi
- Reynsla af þjónustustörfum æskileg
- Hreint sakavottorð