

Hlutastarf í Ground Operations Center
Airport Associates leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til að starfa í Ground Operations Center. Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni í hröðu og spennandi vinnuumhverfi á Keflavíkurflugvelli.
Um er að ræða 50% hlutastarf, unnið er samkvæmt 5-5-4 vaktakerfi með dag- og kvöldvöktum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almennt hleðslueftirlit.
- Umsjón á farþega- og fraktflugi.
- Gerð hleðsluskráa og hleðslufyrirmæla.
- Samskipti við aðrar deildir innan fyrirtækisins og flugáhafnir.
Hæfniskröfur:
- Reynsla og/eða menntun í flugtengdri starfsemi æskileg.
- Góð enskukunnátta.
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni.
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
- Hreint sakavottorð.
- Gild ökuréttindi.
Airport Associates er sjálfstætt starfandi flugafgreiðslufyrirtæki með höfuðstöðvar við Keflavíkurflugvöll. Starfsemi félagsins nær til alhliða þjónustu við íslensk og erlend flugfélög, þar á meðal hleðslu og affermingu farms, innritun farþega, fraktafgreiðslu og ræstingu.
Nánari upplýsingar veitir:
Íris Ósk Guðlaugsdóttir, mannauðssérfræðingur, [email protected]
Enska
Íslenska










