Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir

Starfsmaður á Bíldudalsflugvelli

Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa við flugvallarþjónustu á Bíldudalsflugvelli. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér margvísleg verkefni sem tengjast daglegum rekstri og þjónustu flugvallarins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sjá um daglegt eftirlit, rekstur og viðhald flugvallarmannvirkja og búnaðar

  • Tryggja örugga og hnökralausa starfsemi flugvallarins í samræmi við verklag og reglur

  • Annast snjóruðning og hálkuvarnir til að tryggja öruggar aðstæður fyrir flugumferð allt árið um kring

  • Halda uppi samskiptum við flugumferð í gegnum flugradíó (AFIS)

  • Sinna björgunar- og slökkviþjónustu flugvallarins

  • Bregðast við atvikum og tryggja viðeigandi viðbrögð við ófyrirséðum aðstæðum

  • Taka þátt í þjálfun og viðhaldi á hæfni sem snýr að öryggi og rekstri

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meirapróf og vinnuvélaréttindi - Frumnámskeið

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur 

  • Reynsla af slökkvistörfum og snjóruðningi er kostur 

  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg 

  • Gott vald á íslensku og ensku 

Til að geta sinnt flugvallarþjónustu þarf viðkomandi að ljúka grunnnámi í bæði flugvallarþjónustu og flugradíó.
Standast þarf læknisskoðun og þrekpróf til að geta sinnt slökkviþjónustu.

Unnið er á vikuvöktum ásamt bakvakt.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Páll Janus Hilmarsson umdæmisstjóri, [email protected]

Vegna kröfureglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að standast bakgrunnsskoðun lögreglu og vera með hreint sakavottorð.

Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bíldudalsflugvöllur, 465 Bíldudalur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Meirapróf CEPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar