

Þjálfari í verslun
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi leiðtogahæfni til að taka dansinn með okkur og stýra einni af verslunum okkar. Þjálfari ber ábyrgð á daglegum rekstri viðkomandi verslunar sem og árangri og gleði hópsins sem þar starfar.
Leiðtogahæfni, lífsgleði, metnaður og keppnisskap eru eiginleikar sem skipta miklu máli auk mikilla söluhæfileika, áreiðanleika og framúrskarandi þjónustulundar. Við leitum að metnaðarfullum starfskrafti sem ætlar sér að hjálpa okkur að slá sölumet alla daga og þjálfa okkur upp í að verða best!
Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi er bráðnauðsynleg. Sömuleiðis ódrepandi áhugi á sölu- og þjónustumálum, víðsýni, samskiptahæfileikar, tæknikunnátta og allt það. Já, þú skilur þetta rétt við erum að leita að týpu sem getur allt!
Hjá Nova starfar öflugur hópur starfsmanna. Við hlaupum hratt og leggjum gríðarlega áherslu á sterka liðsheild. Við leitum að stjórnanda sem vinnur vel með okkur og tekur okkur skrefinu lengra.
Hlökkum til að heyra frá þér!











