
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Teymisstjóri á heimili fyrir börn
Þjónustumiðstöð Árbæjar og GrafarholtsÞjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts leitar að framsýnum og metnaðarfullum teymisstjóra á heimili fyrir börn Móvaði. Um er að ræða 80-100% starf þar sem unnið er á vöktum.Þjónusta heimilisins miðast við að efla færni, auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa. Starfið krefst líkamlegs styrks við veitingu þjónustu. Vegna sérstakra aðstæðna er eingöngu óskað eftir kvenkyns umsækjendum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda.
Reynsla og þekking af umönnun og vinnu með fólki sem nýtir óhefðbundnar tjáskiptaleiðir.
Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum.
Reynsla af stjórnun og teymisvinnu æskileg.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, skipulagshæfni, umburðarlyndi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Íslenskukunnátta B2 (í samræmi við samverópskan tungumálaramma)
Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirsýn yfir stuðnings- og þjónustuþarfir íbúa og ber ábyrgð á að starfsemin mæti þeim.
Veitir leiðsögn um framkvæmd þjónustu og tekur virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu faglegs starfs.
Ber faglega ábyrgð á- og hefur umsjón með framkvæmd þjónustu og vinnur með íbúum á grundvelli einstaklingsáætlana.
Stýrir daglegum störfum starfsfólks í samráði við forstöðumann.
Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
Styður íbúa og aðstoðar þá við athafnir daglegs lífs.
Auglýsing birt11. janúar 2022
Umsóknarfrestur18. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Móvað 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Sérhæfður starfsmaður við krufningar á meinafræðideild
Landspítali

Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliði á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Sjúkraliði á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali