

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Hvolsvelli
Taktu þátt í að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og treysta undirstöðu þriðju orkuskiptanna á Íslandi. Við leitum að rafvirkja sem getur eflt starfsstöð okkar á Hvolsvelli með jákvæðu viðhorfi og drifkrafti. Við köllum sérstaklega eftir fólki með góða öryggisvitund og jákvætt og lausnamiðað hugarfar.
Framkvæmdaflokkar okkar vinna fjölbreytt verkefni í sveitum og bæjum landsins og eru oft andlit okkar útávið. Meðal helstu verkefna eru umsjón með uppbyggingu og viðhaldi á stærsta dreifikerfi landsins, bæði háspennu- og lágspennustrengi, vinna við aðveitustöðvar, háspennulínur og önnur tilfallandi störf. Einnig þarf að hafa gott eftirlit með tækjum og búnaði og sinna viðgerðum jafnt sem nýframkvæmdum.
Við óskum eftir fólki með sveinspróf í rafvirkjun eða vélvirkjun sem hefur góða tölvukunnáttu og jákvætt og lausnamiðað hugarfar. Bílpróf er skilyrði og það væri algjör straumur ef aukin ökuréttindi til aksturs á þyngri bílum fylgdu með. Góð aðlögunarhæfni, vilji til að læra og geta til að horfa á og hugsa um hlutina uppá nýtt í hraðri tækniþróun orkugeirans eru eiginleikar sem við leitum eftir. Við kunnum einnig að meta hjálpsemi, náungakærleik og virðingu fyrir fólki og náttúrunni. Mikilvægt er að hafa góða öryggisvitund þegar kemur að störfum í framkvæmdaflokkum okkar og hafa hugrekki til að taka öryggissamtalið í öllum aðstæðu












