

Tæknisölumaður lagnaefnis - Lagnaverslun BYKO
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í Lagnaverslun BYKO Breidd. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Við leitum að starfsmanni með:
· Reynslu af sölu- og eða þjónustustarfi
· Mikla þekkingu á lagnaefni td. sprinkler og lagnaklefum
· Ríka þjónustulund
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Áhuga á verslun og þjónustu
· Menntun sem tengist pípulögnum kostur en ekki skilyrði
· Íslenskukunnátta, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Útboðsgerð, ráðgjöf og tilboðsgerð til viðskiptavina
· Heimsóknir til viðskiptavina
· Afgreiðsla til viðskiptavina
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Allar nánari upplýsingar veitir Árni Kvaran, Rekstrarstjóri ([email protected]).
Unnið verður úr umsóknum jafn óðum og þær berast












