

Starfsmaður á afgreiðslukassa - BYKO Breidd
Við hjá BYKO erum að leita að öflugu starfsfólki til liðs við okkur á afgreiðslukassa í verslun BYKO í Breiddinni. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími samkvæmt vaktaplani ýmist 7:45-16:00 eða 8:45-17:00.
Við leitum að starfsmanni með:
- Ríka þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afgreiðsla á kassa
- Áfyllingar í verslun
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Kristín Svansdóttir, ([email protected]) skrifstofustjóri.












