Byko
Byko
Byko

Sölumaður í Lagnadeild Byko Suðurnes

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstakling til liðs við okkur í lagnadeild í nýrri og glæsilegri verslun BYKO á Suðurnesjum.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Unnið er alla virka daga og þriðju hverja helgi.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Þekkingu á lagnaefni, kostur
  • Reynslu af sölu- og eða þjónustustarfi
  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Íslenskukunnáttu, skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sala, ráðgjöf og tilboðsgerð til viðskiptavina
  • Afgreiðsla til viðskiptavina

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

Unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Allar nánari upplýsingar veitir Gunnur Magnúsdóttir ([email protected]), verslunarstjóri

Auglýsing birt20. ágúst 2025
Umsóknarfrestur10. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Fitjabraut, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar