
Tæknifræðingur
Tæknimaður á starfstöð Hamars á Eskifirði
Hamar ehf óskar eftir tæknimanni með góða þekkingu á sviði málmiðnaðar til að styðja við rekstur starfsstöðvar Hamars á Eskifirði og þjónusta viðskiptavini Hamars á svæðinu auk þess að sinna öðrum verkefnum á tæknisviði fyrirtækisins.
Helstu verkefni:
· Samskipti og þjónusta við viðskiptavini Hamars á Austurlandi
· Heimsóknir til viðskiptavina
· Verkefni á tæknisviði, s.s. hönnunar-, tækni- og teiknivinna
· Tilboðsgerð, eftirlit með verkefnum og verkefnastýring
· Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda
Menntunar og hæfniskröfur:
· Véltæknifræði, véliðnfræði- eða verkfræðimenntun.
· Góð reynsla og þekking á faginu nauðsynleg
· Iðnmenntun er mikill kostur
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Öguð vinnubrögð og gott skipulag
· Góð þekking á MS Office (Excel, Word og jafnvel MS project)
· Góð þekking á notkun AutoDesk teikni- og hönnunarforrita
· Gott vald á ensku, bæði töluðu og rituðu máli er mikill kostur
Um er að ræða fullt starf
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir:
Valgeir Torfason











