
Garðlist ehf
Garðlist ehf. hefur verið starfandi frá árinu 1989 og sérhæft sig í viðhaldsþjónustu í görðum og á grænum svæðum fyrir einstaklinga, fyrirtæki, hús- og bæjarfélög. Fyrirtækið hefur vaxið mikið á þessum tíma og aukið við sig mannskap og verkefnum jafnt og þétt. Hjá Garðlist ehf starfa 3 skrúðgarðyrkjumeistarar sem allir hafa víðamikla reynslu.
Fyrirtækið er staðsett að Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík. Garðlist hefur yfir að ráða góðum flota tækja til að þjónusta viðskiptavini sína sem best og á sem hagkvæmastan hátt, bæði yfir sumar- og vetrartímann.
Á sumrin starfa um 100 manns hjá fyrirtækinu en á veturna eru nær 40 fastir starfsmenn sem sinna vetrarverkum á borð við snjómokstur, jólaskreytingar og önnur tilfallandi verk.
Viðskiptavinir okkar eiga kröfu á að þau verk sem við erum ráðin til að vinna séu vel af hendi leyst og Garðlist hyggst mæta þeim kröfum og vel það. Garðlist er þekkt fyrir að veita góða þjónustu og hefur haldið föstum viðskiptavinum í fjölda ára og fjölgar þeim alltaf jafnt og þétt, ár frá ári.
Garðlist er framúrskarandi fyrirtæki

Garðyrkjufræðingur
Garðyrkjufræðingur eða nemi í garðyrkju.
Við auglýsum við eftir vönum og laghentum garðyrkjumönnum á vinnustað þar sem enginn dagur er eins.
Helstu verkefni eru garðvinna,plöntun, trjáklippingar og trjáfellingar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Sveinpróf í skrúðgarðyrkju/garðyrkju eða nemi í eftirfarandi
- Reynsla af sambærilegum störfum svo sem garðyrkju- og umhverfisstörfum
- Reynsla af stjórnunarstörfum kostur
- Reynsla af akstri stærri ökutækja og vinnuvéla ( kostur ekki skilyrði )
- BE
- Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér og hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
- Góð íslensku- og enskukunnátta í orði og riti
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Hægt er fræðast nánar um Garðlist á www.gardlist.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
Garðyrkjustörf
Auglýsing birt29. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Tunguháls 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tölvukunnáttaGarðyrkjaHeiðarleikiLíkamlegt hreystiÖkuréttindiSkrúðgarðyrkjaStundvísi
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Flokkstjóri garðyrkjufólks
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkstjóri garðyrkju - Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbær

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Starfstækifæri í jarðhitaborunum
Jarðboranir

Verkstjóri á starfsstöð Samskipa í Vestmannaeyjum
Samskip

Hópstjóri á Verkstæði
Toyota

Verkstjóri brettadeildar
Umbúðamiðlun

Verkefnastjóri hjá Bygging og Viðhald
Bygging og Viðhald ehf

Starfskraftur í steinsmiðju óskast!
Fígaró náttúrusteinn

Vélamaður í malarnámu
Steypustöðin