Jarðboranir
Jarðboranir
Jarðboranir

Starfstækifæri í jarðhitaborunum

Vilt þú starfa í spennandi og krefjandi umhverfi þar sem öryggi, fagmennska og samvinna eru í fyrirrúmi?

Við leitum að öflugum og ábyrgum einstaklingum til starfa við jarðhitaboranir. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir verkstjóra, vaktformanni, aðstoðarborara, karmenn og pallmenn sem vilja taka þátt í krefjandi verkefnum og starfa með reynslumiklu fagfólki í öflugum alþjóðlegum rekstri.

Við leitum að einstaklingum sem:

  • Hafa sterka öryggisvitund og jákvætt viðhorf til öryggismála.
  • Eru ábyrgir, lausnamiðaðir og hafa frumkvæði.
  • Geta unnið vel í teymi við krefjandi aðstæður.
  • Búa yfir góðri samskipta- og samstarfshæfni.
  • Hafa góða enskukunnáttu.
  • Vilja taka þátt í stöðugri þróun og umbótum í starfi.

----------------------------------------------------------------------------------------

Verkstjóri (Toolpusher)

Verkstjóri stjórnar borverkefnum í samræmi við samninga, verkáætlanir og verklagsreglur fyrirtækisins. Starfið krefst öflugs leiðtoga sem getur stýrt teymi, tryggt skilvirkan rekstur og viðhaldið ströngum öryggisstöðlum.

Hæfniskröfur

  • Að lágmarki fimm ára reynsla sem verkstjóri (Toolpusher) á bor.
  • Reynsla af Drillmec-borum og/eða Bentec Euro Rig borum er æskileg.
  • Gild IWCF Well Control réttindi, stig 4.
  • Framúrskarandi leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun starfsmanna.
  • Mjög góð skipulagshæfni.
  • Sterk samskiptafærni og mjög góð enskukunnátta.
  • Hæfni til að leysa vandamál og taka ákvarðanir undir álagi.

----------------------------------------------------------------------------------------

Vaktformaður (Driller)

Vaktformaður er hópstjóri vaktarinnar og ábyrgist miðlun upplýsinga milli verkstjóra og annara starfsmanna á vaktinni. Vaktformaður gegnir lykilhlutverki í borverki, leiðbeinir og stýrir starfsfólki þannig að borframkvæmdir gangi örugglega og skilvirkt fyrir sig.

Hæfniskröfur

  • Að lágmarki þriggja ára reynsla sem borari við jarðhitaboranir.
  • Reynsla af Drillmec-borum og/eða Bentec Euro Rig 350 er æskileg.
  • Gild IWCF Well Control réttindi, stig 3.
  • Reynsla af vaktstjórn eða stjórnun hóps er kostur.
  • Góð leiðtogahæfni og hæfni til að leiðbeina starfsfólki.
  • Lyftararéttindi fyrir 10 tonna lyftara eða stærri eru kostur.
  • Mjög góð enskukunnátta.

----------------------------------------------------------------------------------------

Aðstoðarborari (Assistant Driller)

Aðstoðarborari starfar náið með vaktformanni og leysir hann af eftir atvikum. Aðstoðarborari tekur þátt í almennum störfum við borframkvæmdir, uppsetningu búnaðar, eftirliti með verkferlum og almennum rekstri á borstað. Starfið krefst frumkvæðis, góðrar samvinnu og ríkrar áherslu á öryggi.

Hæfniskröfur

  • Að lágmarki tveggja ára reynsla sem aðstoðarborari er mjög æskileg.
  • Reynsla af Drillmec- eða Bentec-borum er mjög æskileg.
  • IWCF Well Control vottun á stigi 1 eða 2 er nauðsynleg.
  • Reynsla sem kar- mastursmaður (Derrickman) er kostur.
  • Lyftararéttindi fyrir 10 tonna lyftara eða stærri eru kostur.
  • Mjög góð enskukunnátta.

----------------------------------------------------------------------------------------

Kar- mastursmaður (Derrickman)

Kar- mastursmaður gegnir mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri borsins og vinnur náið með borara og aðstoðarborara. Starfið felur meðal annars í sér meðhöndlun borstanga og annars borbúnaðar, umsjón með borvökva ásamt þátttöku í daglegu viðhaldi og rekstri borsins. Starfið krefst góðrar öryggisvitundar, nákvæmni og hæfni til að starfa við krefjandi aðstæður.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af Drillmec- og/eða Bentec-borum er kostur.
  • Reynsla af störfum sem kar- masturmaður (Derrickman) eða sambærileg reynsla úr borrekstri er æskileg.
  • Lyftararéttindi fyrir 10 tonna lyftara eða stærri eru kostur.
  • Mjög góð enskukunnátta.

----------------------------------------------------------------------------------------

Pallmaður (Almenn störf við borframkvæmdir)

Við leitum að öflugum og ábyrgum einstaklingum í almenn störf við borframkvæmdir. Starfið hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa í krefjandi og spennandi umhverfi þar sem öryggi, samvinna og fagmennska eru í fyrirrúmi.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af störfum við borframkvæmdir er æskileg en ekki skilyrði.
  • Vinnuvélaréttindi J og K eru skilyrði.
  • Meirapróf er kostur.
  • Mjög góð enskukunnátta.

----------------------------------------------------------------------------------------

Einungis er um að ræða vaktavinnu.

Hver vakt er 12 tímar og ýmist unnið á dag- eða næturvöktum. Við vinnu erlends er unnið í lengri úthöldum.

Jarðboranir veita nýju starfsfólki góðan stuðning og þjálfun í starfi og hvetja ungt fólk til að sækja um.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Í anda jafnréttisstefnu okkar hvetjum við öll þau sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni.

Auglýsing birt24. september 2026
Umsóknarfrestur11. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar