Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar

Starfsmaður óskast á Skíðasvæðið í Oddsskarði

Skíðasvæðið í Oddsskarði leitar að öflugum starfsmanni til starfa fyrir komandi skíðavetur.

Meginhluti starfsins felst í snjótroðslu og undirbúningi skíðasvæðisins en viðkomandi mun jafnframt taka þátt í almennu viðhaldi og daglegum rekstri svæðisins.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á vélum og tækjum, er handlaginn, sjálfstæður í vinnubrögðum og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni við krefjandi en skemmtilegar aðstæður.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Snjótroðsla og undirbúningur á skíðabrekkum
  • Daglegt eftirlit og umhirða snjótroðara og annarra vinnuvéla
  • Viðhald og viðgerðir á vélum og tækjabúnaði
  • Viðhald og eftirlit með skíðalyftum og öðrum búnaði skíðasvæðisins
  • Undirbúningur svæðisins fyrir opnun og frágangur að loknum opnunartíma
  • Snjómokstur og önnur verkefni tengd snjó og færð
  • Þátttaka í almennum rekstri og öryggismálum skíðasvæðisins
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjandi skal hafa gild vinnuvélaréttindi
  • Reynsla af störfum á skíðasvæði er kostur.
  • Reynsla af vinnu við vinnuvélar, vélar, stór tæki eða sambærilegan búnað.
  • Mikil og góð þekking á viðhaldi, rekstri og umhirðu tækja og búnaðar.
  • Þekking á snjó, veðurfari og snjóflóðahættu.
  • Iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Góð hæfni til að greina og leysa vandamál sem upp geta komið í daglegum rekstri.
  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Ábyrgðarkennd, stundvísi og rík öryggisvitund.
  • Sveigjanleiki og vilji til að vinna á óhefðbundnum vinnutímum þegar aðstæður krefjast þess.
  • Gild ökuréttindi.
Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Eskifjörður , 735 Eskifjörður
Búðareyri 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar