Borg Salmon ehf
Borg Salmon ehf
Borg Salmon ehf

Vélstjóri óskast til starfa hjá Borg Salmon í Borgarnesi

Borg Salmon er hluti af samstæðu Eðalfangs sem á og rekur einnig Norðanfisk á Akranesi og 101 Seafood í Reykjavík. Samstæðan samanstendur af leiðandi fyrirtækjum á sviði matvælaframleiðslu og sölu sjávarafurða þar sem gæði, fagmennska og stöðugar framfarir eru höfð að leiðarljósi.

Borg Salmon leitar að öflugum og ábyrgðarfullum vélstjóra til starfa í hátæknivæddri laxaverksmiðju fyrirtækisins í Borgarnesi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu framleiðsluumhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, öryggi og rekstraröryggi búnaðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni

·         Daglegt eftirlit með vélbúnaði og tæknikerfum verksmiðjunnar

·         Viðhald og bilanagreining á framleiðslubúnaði

·         Skipulagning og framkvæmd reglubundins fyrirbyggjandi viðhalds

·         Þátttaka í uppsetningu og þróun nýs búnaðar

·         Samvinna við framleiðslustjórnendur og aðra starfsmenn

·         Þátttaka í umbótaverkefnum og hagræðingu framleiðsluferla

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur

·         Velstjóraréttindi eða sambærileg menntun

·         Reynsla af viðhaldi og rekstri véla og tæknibúnaðar er kostur

·         Þekking á rafbúnaði og sjálfvirknikerfum er æskileg

·         Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun viðhalds-, gæða- eða framleiðslukerfa er kostur

·         Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

·         Frumkvæði, jákvætt viðhorf og góð samskiptahæfni

·         Góð íslensku- og enskukunnátta

Auglýsing birt19. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vallarás 7-9 7R, 310 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar