
Staðarhaldari á ratsjár- og fjarskiptastöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli
Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða staðarhaldara til starfa á ratsjár- og fjarskiptastöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli við Bolungarvík.
Leitað er að áhugasömum einstaklingi til að annast rekstur og sjá um viðhald á tækjum og búnaði ratsjár- og fjarskiptastöðvarinnar.
Viðkomandi þarf að vera árangursmiðaður, sýna frumkvæði og geta tekist á við krefjandi verkefni við erfiðar aðstæður.
Starfið felur í sér daglega umsjón og eftirlit auk viðhalds svæða, búnaðar, tækja og mannvirkja. Um er að ræða dagvinnustarf en viðkomandi þarf einnig að geta sinnt útköllum utan hefðbundins vinnutíma. Þar af leiðandi er búseta á nærsvæði æskileg.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Daglegt eftirlit með rekstri og öryggi stöðva
- Bilanagreining, viðhald og umsjón með vélbúnaði og tækjum stöðvarinnar
- Eftirlit og umsjón með vegi, nærumhverfi og framkvæmdum
- Samskipti við verktaka og þjónustuaðila
- Öryggis- og svæðisgæsla og almenn húsvarsla
- Skráningar og eftirfylgni vegna rekstrar og viðhalds
- Umsjón með varahlutalager og birgðum
- Umsjón og eftirfylgni með öryggis- og gæðakröfum
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Vélfræðingur, vélstjóri, vélvirkjameistari eða önnur sambærileg menntun og reynsla
- Staðgóð þekking á varaaflsbúnaði, kælikerfum, eldvarnarkerfum og rafmagnsbúnaði
- Ökuréttindi og vinnuvélapróf
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Reglusemi, nákvæmni og snyrtimennska
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta – Fagmennska.
Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.
Enska
Íslenska










