
Girðir, Verktakar ehf
Girðir byggir á gömlum grunni og hefur meira en 30 ára reynslu við uppsetningu girðinga og fleira. Áherslur í rekstrinum hafa þróast frá landbúnaðargirðingum yfir í sólpalla og skjólgirðingar og þaðan í öryggisgirðingar þar er meginþorri verkefna er í dag.
Tæknimaður óskast
Girðir leitar að öflugum og lausnamiðuðum tæknimanni til framtíðarstarfa.
Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér járnsmíði, viðgerðir, uppsetningar og þjónustu á girðingum, hliðum og tengdum búnaði. Við leitum að einstaklingi sem hefur góða verklega þekkingu, getur unnið sjálfstætt og hefur gaman af því að leysa fjölbreytt tæknileg verkefni.
Hjá Girðir eru verkefnin sjaldnast alveg eins frá degi til dags. Við vinnum meðal annars við öryggisgirðingar, hlið, stálvirki, jarðvegsskrúfur og sérlausnir fyrir fyrirtæki, opinbera aðila og einstaklinga.
Girðir byggir á meira en 30 ára reynslu og leggur áherslu á fagmennsku, vönduð vinnubrögð og góðar lausnir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Járnsmíði, suða og almennar viðgerðir
- Smíði og breytingar á búnaði
- Uppsetning, viðhald og viðgerðir á hliðum
- Uppsetning á girðingum og öryggisgirðingum
- Bilanagreining og úrlausn tæknilegra vandamála
- Uppsetning og viðhald á vélbúnaði tengdum hliðum
- Uppsetning jarðvegsskrúfa og tengdra lausna
- Þátttaka í fjölbreyttum sérverkefnum
- Sjálfstæð framkvæmd verkefna á verkstað
- Ábyrgð á vönduðum vinnubrögðum og öryggi við vinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslensku og ensku kunnátta
- Hafa reynslu af járnsmíði og suðu
- Vera handlaginn og lausnamiðaður
- Geta unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á verkefnum
- Vera vandvirkur, stundvís og áreiðanlegur
- Hafa góða hæfni til að vinna með öðrum
- Hafa bílpróf
Kostur er ef viðkomandi hefur:
- Sveinspróf í járnsmíði, vélvirkjun eða sambærilegri iðngrein
- Reynslu af MIG/MAG-suðu
- Reynslu af sjálfvirkum hliðum, mótorum eða rafbúnaði
- Reynsla af viðhaldi og bilanagreiningu vélbúnaðar
- Meirapróf
- Vinnuvélaréttindi
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Mikið sjálfstæði í starfi
- Tækifæri til að taka aukna ábyrgð
- Gott og óformlegt starfsumhverfi
- Tækifæri til að þróast með vaxandi fyrirtæki
- Fullt starf til framtíðar
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bugðufljót 11, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Rekstrarstjóri Tækjaverkstæðis - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Öflugt viðgerðarfólk á verkstæði Vélafls
Vélafl ehf

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja

Construction Workers
Mosfell ehf.

Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Vinnueftirlitið

Stöðvarstjóri á Selfossi
Frumherji hf

Vélvirki eða vélstjóri á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Pípulagningarmaður á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun

Vélvirki
Nói Síríus