
Einingaverksmiðjan
Einingaverksmiðjan ehf. sérhæfir sig í framleiðslu forsteyptra eininga til byggingaframkvæmda. Fyrirtækið býr yfir mikilli þekkingu á þessu hagkvæma og viðurkennda byggingarformi. Tækjabúnaður og sérhæfð þekking gerir fyrirtækinu kleift að afgreiða bæði stór og smá byggingaverkefni. Einingaverksmiðjan er á miklum tímamótum þar sem verksmiðjan var að flytja í nýtt og mun stærra verksmiðjuhúsnæði sem reist var við Koparhellu í Hafnarfirði.
Tækni- og gæðastjóri
Einingaverksmiðjan leitar að öflugum leiðtoga í starf tækni- og gæðastjóra til þess að leiða tækni- og gæðasvið fyrirtækisins. Tækni- og gæðastjóri sér um burðarþolsútreikninga, hannar burðarvirki og einingar, hefur umsjón með magntöku, rýnir teikningar fyrir framleiðslu ásamt því að eiga í samskiptum við hönnuði, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila. Starfið felst auk þess í að teikna upp framleiðsluteikningar frá utanaðkomandi hönnuði sem og sjá til þess að öll hönnun og framleiðsluteikningar séu í samræmi við viðeigandi verklagsreglur, ásamt því að bera ábyrgð á að teikniforrit séu uppfærð og í gildi fyrir fyrirtækið sem og að steypublöndur uppfylli gæðakröfur.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun á sviði byggingartæknifræði eða byggingarverkfræði
Þekking á framleiðslu á forsteyptum einingum er mikill kostur
Þekking á Autocad, Revit og Impact
Frumkvæði og góð samskiptahæfni
Drifkraftur, jákvæðni og góð þjónustulund
Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
Auglýsing birt29. apríl 2022
Umsóknarfrestur15. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Breiðhöfði 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AutoCAD
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Öryggisstjóri (HSE Manager)
atNorth

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum (SCADA) – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Skipuleggjandi viðhaldsverkefna
Rio Tinto á Íslandi

Söluráðgjafi glugga- og sérlausna
Húsasmiðjan

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær

Háskólakennari í byggingafræði
Háskólinn í Reykjavík

Sviðsstjóri upplýsingatækni- og gagnamála
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Deildarstjóri tæknirekstrar
RÚV