Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Háskólakennari í byggingafræði

Háskólinn í Reykjavík leitar að byggingafræðingi til starfa við kennslu, umsjón og framþróun náms í byggingafræði. Starfið er full akademísk staða við tæknifræðideild Háskólans í Reykjavík.

Byggingafræði er 3 ½ árs B.Sc. nám sem á sér sterkar fyrirmyndir á Norðurlöndum og ásókn í námið hefur aukist mikið undanfarin ár. Í dag stunda um 130 nemendur nám í byggingafræði og tæknifræðideild brautskráir 25-30 byggingafræðinga árlega. Háskólinn í Reykjavík er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á nám í byggingafræði.

STARFSSVIÐ:

  • Kennsla í völdum námskeiðum í byggingafræði.
  • Umsjón með kennslu og lokaverkefnum nemenda í samráði við námsbrautarstjóra.
  • Aðkoma að skipulagi námsins og þátttaka í þróun þess.
  • Samskipti við nemendur á öllum námsárum.
  • Umsjón hagnýtra verkefna, starfsnáms og tengsl við atvinnulíf.
  • Þátttaka í þróun og starfi tæknifræðideildar.
  • Þátttaka í innra starfi Háskólans í Reykjavík.

HÆFNI:

Umsækjandi skal:

  • Hafa viðurkennda menntun í byggingafræði BSc og sterka fræðilega hæfni.
  • Hafa reynslu af kennslu og/eða víðtæka reynslu af starfi byggingafræðinga úr atvinnulífi.
  • Hafa starfað við hönnun og framkvæmdir, t.d. á arkitektastofu.
  • Hafa lokið löggildingu sem mannvirkjahönnuður.
  • Þekkja vel til helstu hönnunartækja eins og Revit, Autocad og ACC.
  • Vera skipulagður, nákvæmur og samviskusamur.
  • Vera jákvæður og hafa mikla félagslega færni.
  • Eiga auðvelt með að tjá sig í máli og riti, bæði á íslensku og ensku.
  • Búa yfir frumkvæði og eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt.
  • Brenna fyrir að vinna með nemendum að raunverulegum viðfangsefnum og hagnýtum verkefnum.

Við leitum að byggingafræðingi sem hefur áhuga á framþróun náms í byggingafræði, jafnframt því að auka enn frekar gæði námsins og starfa með nemendum í skapandi og faglegu umhverfi.

Meistaragráða eða viðbótarnám í byggingariðnfræði, tæknifræði, arkitektúr eða verkfræði er kostur, sem og reynsla af háskólakennslu, rannsóknum eða samstarfi við erlenda háskóla. Umsækjendur með doktorspróf sem hafa áhuga á rannsóknum samhliða kennslu og uppfylla hæfniviðmið geta sótt um stöðu lektors.

Viðkomandi mun vinna náið með umsjónarmanni byggingafræðináms, verkefnastjóra á skrifstofu og öðru starfsfólki tæknifræðideildar. Jafnframt tekur viðkomandi virkan þátt í innra starfi deildarinnar og fær tækifæri til að móta og þróa námið í samstarfi við nemendur, kennara og atvinnulíf.

Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2026. Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík og farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Fyrir frekari upplýsingar er áhugasömum boðið að hafa samband við Ásgeir Ásgeirsson, forseta tæknifræðideildar ([email protected]), eða Elísabetu Þóru Jóhannesdóttur ([email protected]), mannauðssérfræðing á mannauðssviði Háskólans í Reykjavík (HR).

Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar