Verksýn
Verksýn

Aðstoðarmaður ráðgjafa viðhalds og mannvirkja

Verksýn óskar eftir að ráða skipulagðan einstakling í stöðu aðstoðarmanns ráðgjafa í viðhalds- og endurbótaverkefnum. Starfið gæti hentað einstaklingi í háskólanámi

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoð við gerð ástandsgreininga
  • Gerð útboðs- og verklýsinga
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. iðnmenntun.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Um Verksýn:

Verksýn var stofnað árið 2006 og hefur síðan þá sérhæft sig í ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum. Fyrirtækið hefur einnig sinnt fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf í tengslum við nýframkvæmdir ásamt almennri framkvæmdaráðgjöf. Markmið Verksýnar er að mæta þörfum viðskiptavina sinna á sem besta mögulegan hátt, stuðla að auknum gæðum húsnæðis á Íslandi og safna og miðla af þekkingu á viðhaldi og endurbótum fasteigna.

Verksýn er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem starfar þéttur hópur reynslumikilla sérfræðinga í góðu vinnuumhverfi.

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur1. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Síðumúli 1, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Skipulag
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar