Fjarskiptastofa
Fjarskiptastofa

Sviðsstjóri innviðasviðs

Hefur þú áhuga á að móta fjarskiptainnviði framtíðarinnar?

Fjarskiptastofa leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga til að stýra innviðasviði - lykileiningu sem mótar tæknilega innviði samfélagsins. Hlutverk innviðasviðs er að stuðla að þróun fjarskiptainnviða og annarra innviða á ábyrgð stofnunarinnar sjá um stjórnsýslu tíðnisviðsins, númeramál, hafa yfirsýn yfir fjarskiptainnviði og samræma aðgerðir við atvikum í fjarskiptakerfum.

Starfsemin byggir á fjarskiptalögum, lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða NIS-lögum og lögum um Fjarskiptastofu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðla að uppbyggingu, virkni, nýsköpun og vöruframboði fjarskipta- og netkerfa. 
  • Umsjón tíðni- og númeramála.
  • Stuðla að áfallaþoli fjarskipta.
  • Innleiðing á reglum og stöðlum er lúta að öryggi og tæknilegri virkni á  starfssviði FST.
  • Skipulag samhæfingar fjarskiptafyrirtækja þegar áföll steðja að.
  • Samskipti við markaðsaðila.
  • Þátttaka í alþjóðlegu starfi. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf, gjarnan í verkfræði eða af raungreinasviði. Framhaldsnám er kostur. 
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi. 
  • Hæfni til að leiða samstarf  og breytingar þvert á ólík fagsvið, tækni, lögfræði og hagfræði.
  • Reynsla af stjórnun er kostur
  • Góð tungumálakunnátta, bæði í rituðu og mæltu máli á íslensku og ensku.
Auglýsing birt12. september 2025
Umsóknarfrestur24. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar