Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun

Svæðissérfræðingur á Norðausturlandi - aðstoðarþjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum

Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar starf svæðissérfræðings fyrir Norðausturland sem sinnir einnig starfi aðstoðarþjóðgarðsvarðar í Jökulsárgljúfrum í Vatnajökulsþjóðgarði. Svæðissérfræðingur gegnir hlutverki staðgengils þjóðgarðsvarðar og tekur virkan þátt í stjórnun og þróun svæðisins auk annarra friðlýstra svæða á Norðausturlandi. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem vill nýta þekkingu sína og áhuga á náttúruvernd til að taka þátt í þróun náttúruverndar, samstarfi og þjónustu við gesti á svæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem frumkvæði og sjálfstæði fá að njóta sín. Starfsstöð er í Ásbyrgi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning landvörslu og annarra rekstrar- og mannauðsmála í umboði þjóðgarðsvarðar-svæðisstjóra á svæðinu
  • Ber ábyrgð á móttöku, leiðsögn og þjálfun starfsfólks
  • Ber ábyrgð á rekstri gestastofu, tjaldsvæðis og innkaupum
  • Ber ábyrgð á gæða- og umhverfismálum svæðisins
  • Leiðir fræðslumál svæðisins
  • Tekur þátt í þróun og stefnumótun svæðisins og Náttúruverndarstofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni
  • Geta til að þróa hugmyndir og verklag
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
  • Þekking á starfsemi þjóðgarða og friðlýstra svæða er kostur
  • Þekking og reynsla af landvörslu er kostur
  • Staðþekking á Norðausturlandi, einkum Jökulsárgljúfrum er kostur
  • Góð þekking á íslensku og ensku
Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ásbyrgi 154070, 671 Kópasker
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar