
atNorth
atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir, í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði og veðurfræði, sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum getur fyrirtækið nýtt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annars staðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.
Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík, en fyrirtækið rekur átta gagnaver á Norðurlöndum. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.

Viltu stýra ört stækkandi gagnaveri hjá spennandi alþjóðlegu fyrirtæki?
Gagnaver atNorth á Reykjanesi, ICE02 er vaxandi gagnaver á Norðurlöndum. Áætlað er að gagnaverið muni skila meira en 20 milljörðum í tekjum á ári en í dag starfa þar um 40 starfsmenn. Gert er ráð fyrir því að þeim fjölgi í um 100 eftir að stækkun gagnaversins lýkur.
Við leitum nú að öflugum leiðtoga til að stýra starfsemi á svæðinu en hlutverkið krefst mikillar reynslu af rekstri ásamt sterkri stjórnunar – og leiðtogafærni.
Þú munt vinna náið með stjórnendum gagnavera atNorth í Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og Noregi.
Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur30. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Steinhella 10, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri framleiðslustýringar
Orka náttúrunnar

Hótelstjóri – Reykjavík Residence Hotel
Reykjavik Residence Apartment Hotel

Almenn skráning
Capacent ehf

Framkvæmdastjóri Fjölnis
Ungmennafélagið Fjölnir

Sviðsstjóri þjónustusviðs
BRÚ Lífeyrissjóður

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Sviðsstjóri upplýsingatækni- og gagnamála
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Framkvæmdastjóri óskast hjá Rammastúdíó
Innrömmun Rammastúdíó

Útibússtjóri Íslandsbanka á Ísafirði
Íslandsbanki

Forstöðukona/-maður framkvæmda hjá Veitum
Veitur

Deildarstjóri frístundastarfs
Frístundaklúbburinn Úlfurinn