

Aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins
Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir umsóknum um starf aðalhagfræðings.Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir umsóknum um starf aðalhagfræðings.
Aðalhagfræðingur ber faglega ábyrgð á hagrænum rannsóknum og greiningum á vettvangi Samkeppniseftirlitsins og sér til þess að þær aðferðir sem beitt er séu vandaðar og byggi á traustum hagfræðilegum grunni. Með það að markmiði stuðlar hann að uppbyggingu og þróun hagfræðilegrar þekkingar innan eftirlitsins og veitir hagfræðingum faglega leiðsögn.
Aðalhagfræðingur er virkur þátttakandi í forgangsröðun verkefna, verkstjórn og ákvörðunum um efnislega niðurstöðu athugana. Jafnframt er hann í samskiptum og samstarfi við fræðasamfélagið, innanlands og utan, og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi, m.a. á vettvangi EES/ESB, OECD og norrænna eftirlita.
Kröfur til starfsins
- Meistara- eða doktorspróf í hagfræði sem nýtist í samkeppniseftirliti.
- Framúrskarandi þekking á hagrænum aðferðum sem nýtast við rannsóknir samkeppnismála sem og markaðsgreiningum.
- Þekking á því lagaumhverfi sem samkeppnisyfirvöld starfa við, hér á landi eða erlendis, er kostur.
- Forystuhæfileikar og hæfni til að leiða faglega vinnu hagfræðinga.
- Frumkvæði, gagnrýnin hugsun og nákvæm vinnubrögð.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti og til þátttöku í erlendu samstarfi.
Föst búseta á höfuðborgarsvæðinu eða Íslandi er ekki skilyrði.
Enska
Íslenska







