Securitas
Securitas
Securitas

Sumarstörf á Reykjanesi

Vilt þú starfa við að auka öryggi viðskiptavina okkar?

Securitas á Reykjanesi leitar að kraftmiklum og jákvæðum einstaklingum í spennandi verkefni í staðbundinni gæslu og farandgæslu í sumar. Í boði eru fjölbreytt verkefni í samstilltum hópi sem veitir viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.

Ef þú...

  • Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
  • Býrð yfir góðri íslenskukunnáttu og enskukunnáttu
  • Hefur metnað til að takast á við krefjandi verkefni

...þá gætum við verið að leita af þér!

Í boði eru þrjú ólík störf í sumar

  • Fullt starf í farandgæslu á Reykjanesi til að sinna eftirlitsferðum og útköllum á ýmsum svæðum. Unnið er 12 tíma vaktir aðra hverja viku.
  • Fullt starf í staðbundina gæslu á Reykjanesi til að sinna öryggisgæslu á verkstað og almennt eftirlit. Unnið er 12 tíma vaktir aðra hverja viku.
  • 70% starf í staðbundinni gæslu á Reykjanesi til að sinna almennri þjónustu við viðskiptavini okkar sem krefst svörun fyrirspurna og fleira. Unnið er frá kl. 8:00 til 16:00 aðra hverja viku.

Við hvetjum öll kyn sem orðin eru 20 ára og eldri, með gilt ökuréttindi og hreint sakavottorð til þess að kynna sér störfin nánar og sækja um. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Umsóknarfrestur er til og með 24. mars nk. Nánar upplýsingar um starfið veitir Sævar Þór Svanlaugsson, verkefnastjóri gæslu á Reykjanesi í síma 580-7000.

Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði sem kappkostar við að veita framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að auka öryggi okkar viðskiptavina. Securitas hefur verið starfrækt í yfir 40 ár og hefur á þeim tíma ávalt haft það að leiðarljósi að vinna eftir gildunum árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi.

Auglýsing birt28. febrúar 2024
Umsóknarfrestur24. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Iðavellir 13, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar