Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Sumarstörf 2026 – Ráðgjafi á meðferðarheimili hjá Barna- og fjölskyldustofu

Vilt þú starfa sumarið 2026 sem ráðgjafi í afleysingu á meðferðarheimili hjá Barna- og fjölskyldustofu. Við leitum að ábyrgum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum í sumarafleysingar. Ráðgjafar á meðferðarheimili sinna krefjandi en afar gefandi starfi þar sem þeir veita skjólstæðingum stuðning og leiðsögn í daglegu lífi og skapa öruggt og styðjandi umhverfi fyrir þá.

Vinsamlegast skráið þá starfsstöð sem þið helst viljið starfa á í reitinn "annað" neðst á umsóknareyðublaðinu. Vekjum athygli á því að ekki öll heimilin eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu (sjá hér að neðan). Möguleiki er á að leysa af á fleiri en einum stað. Áhugasöm eru hvött til að sækja um sem fyrst, en unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Í boði er starf ráðgjafa á eftirfarandi starfsstöðvum:

Félagsleg bráðamóttaka ungmenna – Á höfuðborgarsvæðinu

Meðferðarheimilið Esja – Á höfuðborgarsvæðinu

Stuðningsheimilið Blönduhlíð – Á höfuðborgarsvæðinu

Lækjarbakki – Gunnarsholti á Suðurlandi

Meðferðarheimilið Bjargey – Laugalandsskóla í Eyjafjarðarsveit

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga í samvinnu við stjórnendur og sérfræðinga.
  • Meðferðarvinna undir handleiðslu sérfræðinga og vinna að tómstundastarfi með skjólstæðingum.
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.  
  • Vinna eftir verklagsreglum og þeim gagnreyndu aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu.  
  • Umönnun, stuðningur við athafnir daglegs lífs og tryggja öryggi skjólstæðinga.  
  • Almenn heimilisstörf.  
  • Önnur verkefni í samráði við stjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi, t.d. við meðferðarstarf, öryggisgæslu, tómstunda- eða íþróttastarf.
  • Áhugi og/eða reynsla af að vinna meðferðferðarvinnu með unglingum.  
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
  • Mjög gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.  
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
  • Sveigjanleiki og þjónustulund.
  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.  
  • Gild ökuréttindi.
Auglýsing birt11. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Stuðningsheimilið Blönduhlíð, Skálahlíð 7, 270 Mosfellsbær
Meðferðarheimilið Esja, Stórhöfða 45, 110 Reykjavík
Meðferðarheimilið Bjargey, Laugalandsskóla, Eyjafjarðarsveit, 605 Akureyri
Félagsleg bráðamóttaka ungmenna, Fossaleyni 17, 112 Reykjavík
Meðferðarheimilið Lækjarbakki, Gunnarsholti, 851 Hellu
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar