

Sumarstörf 2022 - Viltu vera á skrá? Sjúkraliði - Öldrunar- og endurhæfingarþjónusta
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Hér geta sjúkraliðar skráð almenna starfsumsókn fyrir öldrunar- og endurhæfingarþjónustu sumarið 2022.
Undir öldrunar- og endurhæfingarþjónustu eru sex deildir staðsettar á Landakoti, Fossvogi og Vífilsstöðum.
Landakot
Öldrunarlækningadeild A, K1
Öldrunarlækningadeild B, K2
Öldrunarlækningadeild C, L4
Útskriftardeild aldraðra, L2
Fossvogur
Bráðaöldrunarlækningadeild B4
Vífilsstaðir
Öldrunardeild Vífilsstöðum H
Vinsamlega skráið óskir um deildir í reitinn "Annað" neðst á umsóknareyðublaðinu. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út.





























































