Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarfsmenn í íbúðarkjarna

Fjölbreytt starf í frábærum hópi

Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir eftir áhugasömu fólki til sumarafleysinga í íbúðarkjarnanum Dimmuhvarfi.

Skemmtilegt og gefandi sumarstarf á líflegum vinnustað.

Um er að ræða fullt starf í sumar þar sem unnið er á vöktum.

Í íbúðakjarnanum búa sex einstaklingar á besta aldri með einhverfu og skyldar raskanir.

Við vinnum eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og leitumst við að veita einstaklingsmiðaðan og persónulegan stuðning á heimilum þeirra jafnt sem utan þess.

Í Dimmuhvarfi starfar þéttur, skemmtilegur, kraftmikill og samheldin starfsmannahópur sem tekur vel á móti nýju fólki.

Sumarráðningar eru frá miðjum maí / byrjun júní fram í lok ágúst.

    Menntunar- og hæfniskröfur
    Reynsla af vinnu með fötluðu fólki er kostur
    Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
    Hæfni í samskiptum og samstarfshæfileikar
    Framtakssemi og sjálfsstæði
    Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
    Helstu verkefni og ábyrgð
    Einstaklingsmiðaður, persónulegur stuðningur við íbúa við allar athafnir daglegs lífs, bæði heima við sem og í námi, leik og starfi
    Vera góð fyrirmynd
    Stuðla að auknu sjálfstæði íbúa
    Taka þátt í meðferð sem miðar að því að minnka ögrandi hegðun íbúa
    Samvinna við hæfingarstöð, samstarfsmenn og aðstandendur
    Auglýsing birt10. maí 2022
    Umsóknarfrestur5. júní 2022
    Tungumálahæfni
    Engar sérstakar tungumálakröfur
    Staðsetning
    Fannborg 6, 200 Kópavogur
    Starfstegund
    Hæfni
    PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
    Hentugt fyrir
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar