Sumarstörf í framleiðslu og áfyllingu - Víking Brugghús
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af fyrirtækinu þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór með stolti. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Við erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.
Helstu verkefni
- Áfylling í samræmi við áætlanir
- Stjórnun framleiðsluvéla og eftirlit með gæðum framleiðslunnar
- Bilanagreining í samvinnu við viðgerðarmenn
- Þátttaka í reglubundnu viðhaldi á tækjum og vélum
- Almenn þrif
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Reynsla af framleiðslustarfi eða verksmiðjuvélum er æskileg
- Sjálfstæð vinnubrögð og greinandi hugsun
- Almenn tölvukunnátta
- Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
- Íslensku- eða enskukunnátta er nauðsynleg
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af vörum Coca-Cola og aðrir starfsmannaafslættir
- Frábært mötuneyti
- Líkamsrækt
- Aðgangur að ráðgjafaþjónustu svo sem sálfræði- og félagsráðgjöf að kostnaðarlausu
Unnið er á 10 klukkustunda vöktum mánudaga til fimmtudaga.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Ferilskrá og kynningarbréf skal fylgja með umsókn. Umsóknarfrestur er til 3. mars 2025.
Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eggert Sigmundsson [email protected] en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.