Leikskólinn Hraunborg
Leikskólinn Hraunborg

Sumarstarf

Hraunborg er þriggja deilda leikskóli í Hraunbergi 10 í Breiðholti í Reykjavík. Leikskólinn er staðsettur í jaðri Elliðaárdals og stutt er í skemmtilegar gönguleiðir og opin náttúrusvæði. Í leikskólanum er lögð áhersla á læsi í víðum skilningi, málörvun, stærðfræði, hreyfingu, vettvangsferðir, samskipti og sköpun. Starfað er í anda sjálfsstjórnarkenninga um Jákvæðan aga og í anda heiltækrar skólastefnu með fjölbreyttum starfsháttum og viðfangsefnum til að koma til móts við þarfir ólíkra einstaklinga. Einkunnarorð Hraunborgar og leiðarljós í starfi eru: Leikur, læsi og lífsgleði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

 Leyfisbréf kennara, önnur uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.

 Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.

 Góð samskiptafærni.

 Frumkvæði í starfi.

 Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

 Góð íslenskukunnátta.

Viðkomandi verður að vera orðin 18 ára.

Auglýsing birt14. maí 2025
Umsóknarfrestur23. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hraunberg 10, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar