Víkurskóli
Víkurskóli

Kennari – ýmis fög

Víkurskóli óskar eftir að ráða til starfa kennara sem gæti tekið að sér enskukennslu, kennslu í samfélagsfræði á unglingastigi, textílkennslu og valgreinar á unglingastigi. Aðrar greinar koma jafnframt til greina. Um fullt starf er að ræða.

Um Víkurskóla

Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og annarra starfsmanna um fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn kennsla
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa góðan skólabrag

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa með börnum og metnaður til að þróa öflugt skólastarf

Við bjóðum upp á:

  • Aðstoð við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk
  • Mjög góður starfsandi og liðsheild
  • Fjölbreytt og öflugt skólastarf

Umsóknarfrestur til og með 1. júní nk. Staðan eru laus frá 1. ágúst 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í síma 4871242 / 7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is.

Auglýsing birt14. maí 2025
Umsóknarfrestur1. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Mánabraut 3, 870 Vík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar