Víkurskóli
Víkurskóli

Stuðningsfulltrúi og umsjónarmaður dægradvalar Víkurskóla

Við óskum eftir einstaklingi í starf stuðningsfulltrúa við Víkurskóla til að sjá um dægradvöl skólans. Leitað er að aðila með hæfni til að starfa með nemendum á öllum stigum og hæfni til að skapa hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem leikur og samvera eru í forgrunni. Um fullt starf er að ræða.

Um Víkurskóla

Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og annarra starfsmanna um fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar nemendur og ýtir undir færni og sjálfstæði þeirra
  • Vinnur eftir áætlun sem útbúin hefur verið í samráði við kennara, sérkennara og aðra ráðgjafa
  • Gæsla nemenda í frímínútum
  • Situr fag-, teymis- og foreldrafundi eftir því sem við á
  • Þátttaka í starfi grunnskóla í samráði og að óskum skólastjóra
  • Umsjón og ábyrgð á skipulagi daglegs starfs dægradvalar í samráði við aðra starfsmenn og stjórnendur
  • Samstarf og samskipti við þjónustunotendur og fjölskyldur þeirra

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki er nauðsynlegur eiginleiki

Við bjóðum upp á:

  • Aðstoð við flutning og öflun húsnæðis.
  • Mjög góðan starfsanda og liðsheild
  • Fjölbreytt og öflugt skólastarf

Umsóknarfrestur til og með 1. júní nk. Staðan eru laus frá 1. ágúst 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í síma 4871242 / 7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is

Auglýsing birt14. maí 2025
Umsóknarfrestur1. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Mánabraut 3, 870 Vík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Metnaður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar