
Stuðningsfulltrúi
Laus er til umsóknar staða stuðningsfulltrúa við Víkurskóla. Leitað er að aðila með hæfni til að starfa með nemendum á á öllum stigum. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg. Um 70-100% starf er að ræða.
Um Víkurskóla
Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og annarra starfsmanna um fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoðar nemendur og ýtir undir færni og sjálfstæði þeirra
- Vinnur eftir áætlun sem útbúin hefur verið í samráði við kennara, sérkennara og aðra ráðgjafa
- Gæsla nemenda í frímínútum og starf í skólavistun
- Situr fag-, teymis- og foreldrafundi eftir því sem við á
- Þátttaka í starfi grunnskóla í samráði og að óskum skólastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
- Jákvæðni og sveigjanleiki er nauðsynlegur eiginleiki
Við bjóðum upp á:
- Aðstoð við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk
- Mjög góðan starfsanda og liðsheild
- Fjölbreytt og öflugt skólastarf
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní nk. Staðan eru laus frá 1. ágúst 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í síma 4871242 / 7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is












