
Kennari óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg er staðsettur í Stangarholti 11, rétt ofan við Hlemm og í næsta nágrenni við Klambratún. 74 börn eru í leikskólanum og er þeim skipt á fjórar deildir.
Einkunnarorð leikskólans eru Leikum-Lærum- Njótum.
Leikskólinn leggur áherslu á læsi og íslenskt mál.
Mikil endurnýjun á húsnæði hefur átt sér stað og er góð vinnuaðstaða fyrir börn og starfsfólk.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt áherslum leikskólans undir stjórn deildarstjóra.
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélagi.
36 stunda vinnuvika
Sundkort
Samgöngustyrkur
Menningarkort
Líkamsræktarstyrkur
Frítt fæði
Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna þegar börnin hafa náð eins árs aldri












