Leikskólinn Skýjaborg
Leikskólinn Skýjaborg
Leikskólinn Skýjaborg

Skýjaborg auglýsir eftir leikskólakennara til starfa

Leikskólinn Skýjaborg auglýsir eftir kennurum til starfa frá 5. ágúst 2025.

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi, Hvalfjarðarsveit með allt að 40 börn. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæki íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.

Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla

·         Vinna í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.  

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Leyfisbréf til kennslu*

·         Reynsla af vinnu með börnum  

·         Góð samskiptahæfni

·         Góð íslenskukunnátta

·         Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

*Ef ekki fást leikskólakennarar verður horft til menntunar og reynslu.

 

Fríðindi í starfi

·         35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.

·         Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30. 

·         6 skipulagsdagar á ári.

·         Veittur er styrkur til náms í leikskólakennaranámi. 

Auglýsing birt14. maí 2025
Umsóknarfrestur29. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Innrimelur 1, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar