Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíðarskóli er lítill skóli í hjarta Reykjavíkur, staðsettur við fjöruna í Fossvoginum, skammt frá Nauthólsvík og Öskjuhlíð. Pláss fyrir 60-80 nemendur í 1.-10. bekk.
Umsjónarkennari á miðstigi
Umsjónarkennari á miðstigi óskast til starfa
Laus er til umsóknar staða umsjónarkennara í 100% stöðuhlutfall á miðstigi skólaárið 2024-2025.
Suðurhlíðarskóli er sjálfstætt starfandi grunnskóli, staðsettur í Suðurhlíð 36. Nemendur skólans eru 65 talsins, í 1.-10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi skólastarf, nám við hæfi hvers og eins, samfélagsþjónustunám og teymisvinnu kennara. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, þátttaka og þjónusta. Í skólanum er samkennsla árganga.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og skólaþróun og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kenna íslensku, samfélagsfræði og náttúrufræði.
- Annast kennslu í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
- Vinna að þróun skólastarfs með samstarfsmönnum og stjórnendum.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og tekur þátt í skólaþróunarvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Menntun og hæfni til kennslu
- Áhugi á að starfa með börnum
- Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á skólaþróun
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Auglýsing stofnuð26. apríl 2024
Umsóknarfrestur10. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Suðurhlíð 36, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Leikskólakennara vantar
Grunnskólinn Borgarfirði eystra
Kennarar við Grunnskóla Borgarfjarðar
Borgarbyggð
Skemmtileg sumarstörf í boði á frístundaheimilum Tjarnarinna
Frístundamiðstöðin Tjörnin
Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Skarðhlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Leikskóla- og frístundaliði - Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Víðivellir
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í miðdeild - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Leikskólakennari óskast á Höfðaberg
Leikskólinn Höfðaberg
Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Viltu hafa áhrif á dýrmæta einstaklinga? Komdu til okkar
Leikskólinn Sjáland
Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg
Leikskólinn Seljaborg