
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Kennarar við Grunnskóla Borgarfjarðar
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir fyrir næsta skólaár eftir umsjónarkennurum á öllum starfsstöðvum.
- Umsjónarkennara í teymi á unglingastigi á Kleppjárnsreykjum.
- Umsjónarkennara í teymi á miðstigi á Kleppjárnsreykjum.
- Umsjónarkennara í teymi á yngstastigi á Hvanneyri,
- Umsjónarkennara í teymi á yngstastigi á Kleppjárnsreykjum
- Umsjónarkennara í teymi á yngstastigi á Varmalandi.
- Myndmennta- og textílkennara á Varmalandi (hlutastarf)
- Íþróttakennara á Varmalandi (hlutastarf til eins árs)
Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva skóli í Borgarfirði. Starfsstöðvar skólans eru þrjár og frá haustinu 2024 verða um 30 nemendur í 1.-5. bekk Hvanneyri, um 95 nemendur í 1.-10. bekk á Kleppjárnsreykjum og um 30 nemendur í 1.-4. bekk á Varmalandi.
Grunnskóli Borgarfjarðar er teymiskennsluskóli þar sem kennarar vinna í teymum með samkennslu tveggja til fjögurra árganga. Skólinn vinnur eftir gildum heilsueflingar og grænfána og er leiðtogaskóli. Nánar um stefnu skólans er á heimasíðunni www.gbf.is
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Reynsla af kennslu í grunnskóla
- Jákvætt hugarfar
- Lipurð í samskiptum
- Áhugi og metnaður fyrir að starfa með börnum og ungmennum
- Góð tölvufærni
- Framtaksemi og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Metnaður í starfi
- Gott vald á íslensku
Auglýsing birt7. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kleppjárnsreykir lóð , 320 Reykholt í Borgarfirði
Varmaland-skóli 134934, 311 Borgarnes
Hvanneyri, 311 Hvanneyri
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri óskast
Heilsuleikskólinn Skógarás

Kennari í Fossvogsskóla
Fossvogsskóli

Leikskólakennari óskast í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

Hofsstaðaskóli - umsjónarkennari í 1. bekk
Garðabær

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Spennandi starf í frístund í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan

Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Hraunsel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Íþróttakennari í 3.-10. bekk og/eða umsjónarkennari í 7.-8. bekk
Svalbarðsstrandarhreppur

Umsjónarkennar á yngsta stigi í Vallaskóla - 100% staða
Vallaskóli, Selfossi

Umsjónarkennari við Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi
Borgarbyggð

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I