Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíðarskóli er lítill skóli í hjarta Reykjavíkur, staðsettur við fjöruna í Fossvoginum, skammt frá Nauthólsvík og Öskjuhlíð. Pláss fyrir 60-80 nemendur í 1.-10. bekk.
Umsjónarkennari á yngsta stigi
Umsjónarkennari á yngsta stigi óskast til starfa
Laus er til umsóknar staða umsjónarkennara á yngsta stigi í 100% stöðuhlutfall skólaárið 2024-2025.
Suðurhlíðarskóli er sjálfstætt starfandi grunnskóli, staðsettur í Suðurhlíð 36. Nemendur skólans eru 65 talsins, í 1.-10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi skólastarf, nám við hæfi hvers og eins, samfélagsþjónustunám og teymisvinnu kennara. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, þátttaka og þjónusta. Í skólanum er samkennsla árganga á yngsta stigi.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og skólaþróun og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu á yngsta stigi í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
- Vinna að þróun skólastarfs með samstarfsmönnum og stjórnendum.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og tekur þátt í skólaþróunarvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Menntun og hæfni til kennslu
- Áhugi á að starfa með börnum
- Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á skólaþróun
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Auglýsing stofnuð26. apríl 2024
Umsóknarfrestur10. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Suðurhlíð 36, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Grunnskólakennari við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð
Umsjónarkennari við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð
Umsjónarkennari við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Fjarðabyggð
Íþróttakennari við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Fjarðabyggð
List- og verkgreinakennarar við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Fjarðabyggð
Viltu koma að kenna í Kópavogsskóla?
Kópavogsskóli
Þroskaþjálfi við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Fjarðabyggð
Umsjónakennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
List- og verkgreinakennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
Grunnskólakennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
Forstöðumaður skólasels / frístund
Fjarðabyggð