Snælandsskóli
Snælandsskóli
Snælandsskóli

Stuðningsfulltrúi í Snælandsskóla - sérdeild

Snælandsskóli er heildstæður um 450 nemenda grunnskóli staðsettur í Fossvogsdal. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla hefur verið lögð á þátttöku í margs konar þróunar- og nýbreytniverkefnum. Skólinn hefur lagt áherslu á umhverfismál og er löng hefð fyrir Grænfána. Skólinn er Heilsueflandi grunnskóli, styðst við Olweusaráætlunina gegn einelti og er Réttindaskóli Unicef.

Einkunnarorð skólans eru: Viska – virðing – víðsýni – vinsemd.

Starfssvið, helstu verkefni

Við leitum eftir hressum og öflugum stuðningsfulltrúa í Smiðju, sem er sérdeild við Snælandsskóla. Í deildinni eru nemendur í 8.-10. bekk og koma víðs vegar að úr Kópavogi. Hlutverk stuðningsfulltrúa er að vinna náið með kennurum sérdeildar og vera nemendum innan handar við ýmis verkefni. Í Smiðjunni er leitast við að hafa starfið fjölbreytt og skapandi auk þess sem áhersla er á að þjálfa nemendur í félagsfærni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum er æskileg
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
  • Starfsmaður þarf að vera tilbúinn til að venna eftir stefnu skólans
  • Góð íslenskukunnáta

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Um er að ræða 75-80% starfshlutfall.
  • Ráðið er í stöðuna frá 15. ágúst 2024.

Aðrar upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.

Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar M. Ólafsson skólastjóri í síma 860-3526 eða netfangið brynjarm@kopavogur.is.

Eingöngu er tekið á móti starfsumsóknum í gegnum alfred.is.

Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogs fá frítt í sund í Kópavogi

Auglýsing birt24. júlí 2024
Umsóknarfrestur7. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Víðigrund 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar