Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.
Leikskólakennari í íþróttakennslu óskast á Bæjarból
Heilsuleikskólinn Bæjarból leitar að öflugum starfsmanni til að hafa umsjón með skipulagningu og hreyfingu barna. Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstakling sem til er í að tileinka sér starfshætti leikskólans sem er heilsueflandi leikskóli. Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra og deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Miðað er við stig B2 skv. evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi í starfi
- Á Bæjarbóli er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks.
- Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga.
- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ.
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.
- Í leikskólum Garðabæjar er 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunnar á hverri deild og aukalegt 50% stöðugildi á yngstu deild ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild.
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf.
Auglýsing birt6. september 2024
Umsóknarfrestur26. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)
Frístundarleiðbeinendur við frístundaheimili á Reyðarfirði
Fjarðabyggð
Frístundarleiðbeinandi í félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð
Hraunmeistari | Lava Master - Vík í Mýrdal
Lava Show
Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur
Kringlumýri frístundamiðstöð
Rafíþróttakennari
Arena
Leikskólar LFA - Viltu vera með ?
LFA ehf.
Við leitum að leikskólakennara í teymið okkar
Arnarsmári
Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð
Deildarstjóri sérkennslu við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð
Sérkennari í Sunnulækjarskóla
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Kennari á miðstigi - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Sérkennsla í Rofaborg
Leikskólinn Rofaborg