Frístundamiðstöðin Miðberg
Frístundamiðstöðin Miðberg
Frístundamiðstöðin Miðberg

Skemmtileg hlutastörf í boði í Breiðholti

Frístundamiðstöðin Miðberg óskar eftir starfsfólki í frístundaheimilin í vetur.

Skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Frístundamiðstöðin Miðberg er með laus störf á eftirfarandi frístundaheimilum: Álfheimum við Hólabrekkuskóla, Bakkseli við Breiðholtsskóla, Hraunheimum Hraunbergi 12, Regnboganum Hólmaseli 4-6, Vinaheimum við Ölduselsskóla og Vinaseli Kleifarseli 18.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
Leiðbeina börnum í leik og starfi.
Umsjón og undirbúningur klúbbastarfs s.s. íþróttir, leikir, föndur o.fl.
Samráð og samvinna við börn og annað starfsfólk.
Samskipti og samstarf við foreldra.

Hæfniskröfur
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
Áhugi á að vinna með börnum
Frumkvæði og sjálfstæði.
Færni í samskiptum.

Í boði eru hlutastörf, 30% -50%, með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi. 
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  1. Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  2. Áhugi á að vinna með börnum. 
  3. Frumkvæði og sjálfstæði.
  4. Færni í samskiptum.
  5. Góð íslenskukunnátta.

 

 Í boði eru hlutastörf, 20%-50%, eftir hádegi virka daga.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 22. ágúst 2024.

 Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Auglýsing birt6. september 2024
Umsóknarfrestur19. september 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMeðalhæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Álfabakki 10, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar