Breiðagerðisskóli
Breiðagerðisskóli

Stuðningsfulltrúi

Stuðningsfulltrúi óskast til starfa við Breiðagerðisskóla í 75% starf.

Í Breiðagerðisskóla eru u.þ.b. 370 nemendur í 1. til 7. bekk. Einkunnarorð skólans eru menntun, samvinna, vellíðan. Kennsluhættir Breiðagerðisskóla einkennast af fjölbreytni þar sem reynt er að koma til móts við ólíkar þarfir og áhuga nemenda. Lögð er áhersla á vellíðan allra og að nemendur taki stöðugum framförum.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að veita nemendum stuðning í daglegum athöfnum og námi.

Að vera kennurum til aðstoðar með nemendur sem þurfa sértæka aðstoð.

Að starfa í stuðnings- og sérkennsluteymi skólans.

Að auka færni og sjálfstæði nemenda, námslega og í daglegum athöfnum í samstarfi við foreldra og kennara.

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfni í mannlegum samskiptum.

Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Fagmennska í vinnubrögðum.

Reynsla og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Auglýsing stofnuð26. júní 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Breiðagerði 20, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar