Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúar - Grunnskólinn í Borgarnesi

Grunnskólinn í Borgarnesi óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2025-2026.

Í Grunnskólanum í Borgarnesi eru um 330 nemendur í 1.–10. bekk og um 60 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur samhentur starfsmannahópur með það að leiðarljósi að gera gott skólastarf betra. Skólinn er teymiskennsluskóli og vinnur eftir áherslum Uppeldis til ábyrgðar.

Stuðningsfulltrúi fylgir bekk eða sínum skjólstæðingi eftir því sem við á, um er að ræða 70-80% starfshlutfall á launadreifingu.

Auk þess auglýsir skólinn eftir tveimur stuðningsfulltrúum í samþætt 100% starf, sem felst í stuðningi á yngsta stig fram að hádegi og í Frístund eftir hádegi.

Gildi skólans eru sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki 
Fríðindi í starfi
  • Afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
  • Afsláttur hjá Símanum
  • Afsláttur á bókasafninu
Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur17. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Gunnlaugsgata 13, 310 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar