

Stígðu rétta skrefið: Byrjaðu starfsferil hjá Alvotech
Byggðu upp þinn starfsferil hjá Alvotech!
Viltu taka næsta skref á ferlinum þínum og verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki sem vinnur að því að bæta líf fólks?
Alvotech leitar að drífandi og áhugasömum einstaklingum til að ganga til liðs við öflugt framleiðsluteymi okkar í Reykjavík. Við bjóðum þér að taka þátt í Alvotech Academy, sérsniðinni þjálfunaráætlun sem stendur yfir í 9 vikur og fer fram í hvetjandi og faglegu umhverfi. Þar færðu tækifæri til að byggja upp þekkingu og færni sem nýtist til framtíðar. Þú færð greitt fyrir allt þjálfunartímabilið.
Næsti hópur hefst 24. nóvember 2025.
Að þjálfun lokinni fá þeir einstaklingar sem staðist hafa kröfur um hæfni og skilning boð um starf í framleiðslunni hjá Alvotech. Skilyrði er að geta unnið á dag-, kvöld- og næturvöktum.
Það sem þú lærir í Alvotech Academy:
- Grunnþjálfun: Fræðsla og kynning á framleiðslustarfseminni ásamt verkþjálfun í lyfjaframleiðslu.
- Lyfjaframleiðslusvæði: Þjálfun á vinnulagi á hreinum lyfjaframleiðslusvæðum.
- Skjalagerð og reglufylgni: Læra og skilja góða hætti í lyfjaskjalavinnslu (Good Documentation Practices).
- GMP þjálfun: Þjálfun í góðum framleiðsluháttum (Good Manufacturing Practices).
Það sem við leitumst eftir:
- Vaktavinna: Nauðsynlegt er að hafa tök á því að vinna á morgun-, kvöld- og næturvöktum.
- Nákvæmni og auga fyrir smáatriðum: Við kunnum að meta nákvæm vinnubrögð.
- Áhugi á að læra: Vilji til að tileinka sér þekkingu og þróast í starfi er lykilatriði.
- Góð enskukunnátta: Nauðsynlegt er að hafa góð tök á ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
Kostur að hafa:
- Þekking á GMP: Kostur er að hafa þekkingu á góðum framleiðsluháttum (Good Manufacturing Practices), en ekki skilyrði.
- Reynsla af rannsóknarstofu: Reynsla af starfi á rannsóknarstofu eða í reglubundnu umhverfi er kostur, en ekki skilyrði.
- Framhaldsskólapróf: Framhaldsskólapróf í náttúruvísindum er kostur, en ekki skilyrði.
Afhverju Alvotech?
- Alhliða þjálfun: Taktu þátt í Alvotech Academy, þar sem þú verður hluti af skemmtilegum hópi sem fer saman í gegnum ítarlega og markvissa þjálfun með leiðsögn sérfræðinga.
- Þróun starfsferils: Við bjóðum uppá meira en bara starf - þetta er tækifæri til að byggja upp spennandi starfsferil og vaxa innan alþjóðlegs fyrirtækis.
- Starfsumhverfið: Vertu hluti af teymi sem leggur áherslu á vöxt, samvinnu og fagmennsku.
Við hvetjum þig til að heimsækja ráðningarsíðuna okkar, þar sem þú getur kynnt þér starfið hjá Alvotech nánar (link: Join us - Alvotech - Better Access Better Lives).
Að auki getur þú skoðað þetta stutta kynningarmyndband um Alvotech Academy (linkur: Alvotech Akademían - YouTube).
Ef þetta hljómar spennandi þá hvetjum við þig eindregið til þess að sækja um og vera hluti af spennandi vegferð Alvotech!
[English]
Make a smart move: Launch a career with Alvotech
At Alvotech, you can build a future career in a global environment and help improve people’s lives. We are looking for motivated individuals, to join our manufacturing team in Reykjavik. No prior experience in a pharmaceutical company or education is necessary. We’ll start by teaching you everything you need to know in our Alvotech Academy training program. This is a paid position.
You can be a part of a group starting on November 24th 2025.
After completing the Alvotech Academy, successful candidates will be offered positions as operators in the manufacturing of biosimilars. The ability to work day-, evening- and nightshifts is mandatory.
What you’ll learn in the Alvotech Academy:
- Learn the Basics: Get a solid introduction to our manufacturing operations and training in Good Manufacturing Practices (GMP) and Hands-On Experience.
- Clean Room Training: Learn how to work within clean rooms and maintain a controlled environment.
- Documentation and Compliance: Understand good documentation practices, compliance, and data integrity.
What we seek:
- Attention to Detail: We value thoroughness and a keen eye for detail, above all.
- Eagerness to Learn: A willingness to learn and grow is essential.
- English Proficiency: Alvotech’s staff is from over 60 different countries. You’ll need to be proficient in English.
- Shift Work: Being prepared to work in morning, evening, and night shifts.
Good to Know:
- Good Manufacturing Practices: It’s a plus if you know Good Manufacturing Practices, but it’s not mandatory.
- Lab Experience: Experience from a laboratory or regulated manufacturing facility is also a plus, but not mandatory.
What we offer:
- Get paid to train with your peers: You will receive in-depth training and mentorship with a group of like-minded individuals.
- Career Growth: This is more than just a job - it’s a career opportunity with one of Iceland’s most dynamic high-tech companies.
- Supportive Environment: Join a team that values your personal growth and development.
We encourage you to visit our Career page (link: Join us - Alvotech - Better Access Better Lives). It offers valuable insights into our culture, values, and the innovative work we do.
Additionally, you can check out this short introductory video about the Alvotech Academy (link: Alvotech Akademían - YouTube).
Grow with us and advance your career at Alvotech.
Ready to take the next step? Apply now, we are excited to get to know you better.


























