Byko
Byko
Byko

Starfsmaður í vöruhúsi - BYKO Fossaleyni

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í nýtt vöruhús BYKO að Fossaleyni.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Ríka þjónustulund
  • Skipulagshæfni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Bílpróf, skilyrði
  • Lyftarapróf, kostur
  • Góða Íslenskukunnáttu, skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Móttaka og frágangur á sendingum
  • Losun og frágangur á vörum úr gámum
  • Tínsla á pöntunum
  • Tiltekt og lestun bíla
  • Afgreiðsla og afhending á vöru til viðskiptavina
  • Önnur tilfallandi verkefni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með 16.október en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Allar nánari upplýsingar veitir Steinn Guðni Einarsson, ([email protected]) rekstrarstjóri

Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fossaleynir 19-23, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar